Bókaútgáfa
Bækur um fjármál einstaklinga
Framtíðarsýn gefur út bækur eftir Gunnar Baldvinsson um fjármál einstaklinga – fyrir ungt fólk, námsfólk og þau sem undirbúa starfslok.

Bækurnar
Allar bækurnar
Bækurnar eru sendar í pósti við fyrsta tækifæri eftir að pöntun berst.

Snjöll skref í fjármálum
Ný kennslubók fyrir framhaldsskóla um grunnatriði og helstu hugtök í fjármálum einstaklinga. Byggð á Lífið er rétt að byrja og nýtir efni úr Fyrstu og Farsælum skrefum í fjármálum.
4.750 kr
Farsæl skref í fjármálum
Helstu hugtök og aðferðir við daglega fjármálastjórn, val á sparnaðarleiðum, lántöku og stóru fjárhagslegu ákvarðanirnar. Kennslubók fyrir framhalds- og háskóla — inngangsorð eftir Gylfa Magnússon prófessor.
4.500 kr
Fyrstu skref í fjármálum
Grunnatriði í fjármálum einstaklinga fyrir ungt fólk sem stígur sín fyrstu skref í átt að fjárhagslegu sjálfstæði. Notuð í kennslu á lokaári grunnskóla og fyrsta ári framhaldsskóla.
1.500 kr- no image
Farsæl og Fyrstu skref saman
Báðar bækurnar saman í pakka — Farsæl skref í fjármálum og Fyrstu skref í fjármálum.
4.750 kr 
Lífið á efstu hæð
Bók fyrir þá sem vilja undirbúa fjármál við starfslok — um eftirlaunasparnað, hálfan lífeyri, ávöxtun, erfðamál og varnir gegn tekjumissi.
4.500 kr- no image
First Steps in Finance
The international English edition of Fyrstu skref í fjármálum — personal finance basics for young people. Also published in the UK, Greece and Albania.
1.200 kr - Uppselt

Lífið er rétt að byrja
Grunnatriði í fjármálum einstaklinga fyrir ungt fólk sem er að verða fjárráða. Sex kaflar, 140 blaðsíður — hvert viðfangsefni á einni opnu með góðu ráði og verkefnum.
2.200 kr
Umsagnir
Hvað finnst fólki?
„Snjöll skref í fjármálum er einkar fróðleg bók með mörgum raunhæfum dæmum sem auðveldar að tengja við íslenskan raunveruleika. Bókin, sem skrifuð er fyrir ungt fólk, er ekki síður tilvalin fyrir fólk á öllum æviskeiðum.“
„Fjárhagsleg hugtök geta verið yfirþyrmandi en bækurnar útskýra þau vel þannig að flókin hugtök verða vel skiljanleg. Dæmin eru raunveruleg og hjálpa því mikið þegar kemur að því að stýra sínum eigin fjármálum.“
Um útgáfuna
Framtíðarsýn
Framtíðarsýn ehf. er bókaútgáfa sem gefur út fræðsluefni um fjármál einstaklinga eftir Gunnar Baldvinsson. Bækurnar eru notaðar í kennslu í grunn-, framhalds- og háskólum og hafa verið staðfærðar og gefnar út í Bretlandi, Grikklandi og Albaníu.
Lesa meira →Hafa samband
framtidarsyn@framtidarsyn.is
Skútuvogi 13a
104 Reykjavík